Atvinnuhúsnæði
Eignarekstur býður upp á heildarlausnir í rekstri atvinnuhúsnæðis.
Sérsniðnar lausnir
Eignarekstur býður upp á heildarlausnir í rekstri atvinnuhúsnæðis. Með hlutlausum og faglegum vinnubrögðum gerum við rekstur atvinnuhúsnæðisins markvissari og ódýrari, auðveldum störf stjórnar, samskipti eigenda og/eða leigjenda, aukum samheldni, leysum ágreiningsmál og spörum tíma.
Sé ekkert rekstrarfélag fyrir þá getur Eignarekstur aðstoðað við að stofna rekstrarfélagið fyrir fasteignina. Í byrjun er þá aukalega kostnaður við það að stofna kennitölu og halda stofnfund með fundarstjóra.
Öll helstu gögn í hús- og rekstrarfélögum í þjónustu Eignareksturs eru aðgengileg inn á mínum síðum eigenda á eignarekstur.is.
Vantar þig aðstoð við rekstrarfélagið?
Veldu þá þjónustuleið sem hentar ykkur best.
Grunnþjónusta
- Innheimta húsgjalda og VSK endurgreiðslur
- Greiðsla reikninga og annarra útgjalda sem stjórn hefur samþykkt
- Færsla bókhalds, afstemmingar, milliuppgjör og gerð ársreiknings
- Áætlanagerð, skattframtal og umsjón með virðisaukaskattsskilum
- Ávöxtun framkvæmdasjóðs og annarra peningalegra eigna rekstrarfélagsins
- Aðalfundur: Undirbúningur, fundarboð, fundarstjórn, frágangur og fundargerðir
- Húsfélagsyfirlýsingar samkvæmt verðskrá
- Samskipti við stjórn og félagsmenn
- Samskipti við opinbera aðila
Premiumþjónusta
Bókhald, fjármál, fundur og framkvæmdastjórn
Allt í Grunnþjónustu +
- Framkvæmdastjórn sérsniðin lausn fyrir rekstrarfélagið samkvæmt nánari skilgreiningu
- Umsjón með leigusamningum og leigjendum
- Öflun tillboða í daglegan rekstur
- Milliganga um iðnaðarmenn
- Almenn ráðgjöf vegna ágreiningsmála
Lúxusþjónusta
Tvisvar í mánuði:
- Yfirferð á húsi
- Eftirlit með viðhaldsþörfum
- Eftirlit með gáma/ruslasvæði
- Hreinsun í kringum hús
Eftir þörfum:
- Skipt um perur
- Smyr læsingar og lamir
- Stillir hurðapumpur
- Hreinsar frá niðurföllum
- Létt viðhald (sem krefst ekki fagprófs)
- Pantar rafvirkja, smið eða pípara eftir samkomulagi