Leigufélög
Við tryggjum góðan rekstur, gerum
áætlanir og fylgjum þeim eftir.
Eignarekstur sérhæfir sig í umsjón leigufélaga fyrir eigendur fasteigna, hvort sem um íbúðar- eða atvinnuhúsnæði er að ræða. Markmið okkar er að auðvelda fasteignaeigendum og leigufélögum útleigu fasteigna og rekstur þeirra og hámarka arð.
Um er að ræða sérhæfða þjónustu sem getur innifalið:
- Umsjón með auglýsingu og val á leigjanda
- Gerð leigusamninga
- Árleg skoðun trygginga
- Reikningagerð og innheimta leigutekna
- Samskipti og upplýsingagjöf gagnvart leigutaka
- Umsjón og eftirlit með eignum
- Rekstrarleg umsjón
Vandasamt innheimtuferli
Þeir sem fást við að leigja út húsnæði þekkja og vita hversu viðkvæmur reksturinn er ef leigutekjur skila sér seint eða jafnvel alls ekki. Eignarekstur býður viðskiptavinum sínum upp á vandasamt utanumhald og eftirlit með innheimtuferli vegna húsaleigu. Mjög gott skilvirkt aðhald er með þeim sem ekki greiða á tilsettum tíma.