fbpx

Árangurssögur

Hvað segja viðskiptavinir okkar um þjónustuna?

Sigurður Grétarsson, Efstihjalli 1-25
„Húsfélag Efstahjalla 1-25 hefur verið í þjónustu hjá Eignarekstri síðan árslok 2017.
Húsfélagið hefur fengið góða, persónulega og lausnamiðaða þjónustu. Öll þau
margvíslegu verkefni sem Eignarekstri hefur verið falið að leysa fyrir húsfélagið hafa verið leyst með mikilli prýði, s.s. ráðgjöf varðandi lög um húsfélög, viðhaldsverkefni, útboð og aðstoð við gerð einsaskiptasamninga, viðhaldsverkefna sem og fjársýsla fyrir húsfélagið. Þá ber að nefna aðstoð við húsfundi og fundarstjórnun sem hefur verið mjög fagmannleg og hefur létt mjög álagið á stjórn húsfélagsins. Við mælum með Eignarekstri.“ segir Sigurður

Gunnar Gunnarsson, Klapparhlíð 3

"Húsfélagið er í öruggum höndum aðila Eignareksturs og ég mæli hiklaust með að vera í viðskiptum við þau. Ég met það til bættra lífsgæða að annast bókhald húsfélagsins og ekki síst að halda aðalfundinn með öllu því sem honum tilheyrir. Eignarekstur heldur fundi með frábærri framsetningu og góðum undurbúningi. Það er skoðun mín að ef upp kemur ágreiningur í húsfélaginu sé best að fá þriðja aðila eins og fagaðila hjá Eignarekstri til að koma að málinu leiða með lagalegum rökum málin til að lykta og eyða út persónulegum skætingi sem hefur grafið um sig í samfélaginu, ósætti er ekki versta böl  samfélagsins. Eins og spakmæli segja: Ekkert jafnast á við að búa í sátt og samlyndi." segir Gunnar.

Alda Svansdóttir, Ferjuvað 13-15
Áður en Eignarekstur tók við var húsfélagið mjög illa statt og skuldir miklar. Strax og
Eignarekstur tók við var farið strax í að vinna úr málunum og erum við þvílíkt ánægð með þjónustuna. Mæli hiklaus með þeim, traust og góð þjónusta.
Pálmar, Krummahólar 6
Við skiptum um umsjónaraðila til að sjá um húsfélagið og sjáum ekki eftir því. Ákvörðunin snérist um hagræðingu og vorum við að spara húsfélaginu um 50% við að breyta um umsjónaraðila. Starfsmenn Eignareksturs eru vandvirkir og bjóða upp á faglega og góð vinnubrögð. Þjónustverið er fljótt að svara og leysa hratt og örugglega úr málunum. Eignaresktur hefur aðstoðað okkur við stórar framkvæmdir sem smára og hefur fundarstjórnun verið til fyrirmyndar. Almennt erum við mjög ánægð með þá þjónsutu sem við höfum fengið. Við mælum með Eignarekstri fyrir öll húsfélög! 
Þorvarður F. Ólafsson, Hamraborgarráð, Kópavogur
Við þurftum á hæfni og heiðarleika að halda við rekstur húsfélagsins. Gengið var til
samninga við Eignarekstur í byrjun sumars 2017. Voru strax ráðnir verktakar í ræstingar og sorphirðu, með meira en helmings sparnaði í samanburði við það sem áður var. Á aðalfundi í febrúar 2018 sýndi ársreikningurinn augljós batamerki og gefur hann góð fyrirheit um framhaldið.
Ellen Rut, Eiðistog 1-17
Eignarekstur tók við okkar húsfélagi í ársbyrjun 2016, húsfélagið var skuldsett og það þurfti að koma því í lag eins fljótt og hægt var. Eignarekstur tók til hendinni gerði plan fyrir okkur og reddaði málunum. Þvílíkur léttir að fá faglega aðstoð við að rétta húsfélagið af. Í dag erum við í góðum málum. Eignarekstur sér um öll okkar mál hvort sem þau eru stór eða smá, reksturinn hefur aldrei verið í svona góðum málum og höndum eftir að Eignarekstur tók við okkur. Við mælum 100% með þeirra framúrskarandi og persónulegu þjónustu.
Stefán Sigurður Briem, Ferjuvað 13-15
Rekstur húsfélagsins okkar hefur aldrei verið eins góður. Vel er haldið utanum hlutina og okkur veitt afskaplega góða og persónulega þjónustu. Eignarekstur sá um að láta setja upp myndavélakerfi sem við erum mjög ánægð með. Eftir það hafa engin innbrot verið framin, umgengi er mun betri og öryggistilfinning meðal íbúa er miklu meiri. Ég mæli tvímælalaust með Eignarekstri. Þeir vinna faglega, leysa vandamálin og bera hag húsfélagsins í brjósti.
Kristín Hildimundardóttir, Hjallabraut, Hafnarfirði
Við sjáum ekki eftir því að hafa fengið Eignarekstur í að sjá um okkar mál hjá húsfélaginu. T.D. þá báðum við Eignarekstur um að fá tilboð í málningarvinnu fyrir stigagang hjá okkur og fóru þau strax í verkið, það er mikill munur að þurfa ekki að hugsa um að hringja út og suður eftir tilboðum. Svo er líka svo gott að þurfa ekki að hugsa um reikningana um hver mánaðarmót!

Jónas Kári Eiríksson, Suðurhólum, Reykjavík
Þegar Eignarekstur tók við húsfélaginu okkar var það skuldsett og leysa þurfti úr málum. Eignarekstur tók strax til hendinni og kom málunum í lag. Þau hjá Eignarekstri veita persónulega og framúrskarandi þjónustu og auðvelt er að eiga samskipti við þau. Mæli 100% með þeim!


Image
Image
Image
Image
Image
Image

© Hannað af Filmís