Fjöleignarhúsamál
Aðalfundir, almennir fundir, fundarboðun, fundarseta, atkvæðisréttur,
atkvæðisgreiðslur, vægi og talning atkvæða, fundarstjórn og fundargerð.
Húsfundir
Æðsta vald í málefnum húsfélagsins er í höndum húsfundar. Húsfundir eru tvenns konar, þ.e. aðalfundir og aðrir almennir fundir. Á þessari síðu er að fjallað um aðalfundi, almenna fundi, fundarboðun, fundarsetu, atkvæðisrétt, atkvæðisgreiðslur, vægi og talningu atkvæða, fundarstjórn og fundargerð. Upplýsingar um töku sameiginlegra ákvarðana er að finna undir Ákvörðunartaka.
Aðalfundur
Aðalfundur húsfélags skal haldinn ár hvert fyrir lok aprílmánaðar. Til aðalfundar skal stjórnin boða skriflega og með sannanlegum hætti með minnst 8 og mest 20 daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundartíma, fundarstað og dagskrá. Þá skal geta þeirra mála sem ræða á og meginefni þeirra tillagna sem leggja á fyrir fundinn. Vilji eigandi fá
mál tekið fyrir og til atkvæðagreiðslu á aðalfundi skal hann greina stjórn frá því skriflega með þeim fyrirvara að unnt sé að geta þeirra í fundarboði.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir eftirtalin mál:
1. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
2. Framlagning ársreikninga til samþykktar og umræður um þá.
3. Kosning formanns.
4. Kosning annarra stjórnarmanna.
5. Kosning varamanna.
6. Kosning endurskoðanda og varamanns hans.
7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár.
8. Ákvörðun hússjóðsgjalda.
9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði.
10. Önnur mál.
Almennir fundir
Á öðrum húsfundum en aðalfundi skal fjalla um þau mál sem tiltekin eru í fundarboði.
Almennir fundir eru haldnir:
1. Þegar stjórnin telur það nauðsynlegt.
2. Þegar þess er krafist skriflega af 1/4 hluta félagsmanna annaðhvort miðað við fjölda eða eignarhluta og skulu þeir jafnframt tiltaka þau málefni sem óskast rædd og tekin fyrir og afgreidd. Sinni stjórnin ekki án ástæðulauss dráttar þeirri kröfu er viðkomandi eigendum rétt að boða sjálfir til fundarins og halda hann og telst hann þá löglegur að öðrum skilyrðum fullnægðum.
3. Þá skal enn fremur halda fund í samræmi við ákvörðun fyrri fundar. Stjórn húsfélagsins á að boða til almenns fundar með minnst 4 og mest 20 daga fyrirvara.
Félagsmaður getur skotið ákvörðunum stjórnar sem honum við koma til húsfundar og á félagsmaður rétt á að fá ákveðin mál tekin fyrir til umræðu á húsfundi en ekki til atkvæðagreiðslu nema þess hafi verið getið í fundarboði. Séu allir félagsmenn hins vegar mættir getur fundurinn samþykkt afbrigði og tekið mál til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu þótt þeirra hafi ekki verið getið í fundarboði.
Fundarboð
Aðalfundur
Til aðalfundar skal boða skriflega og með sannanlegum hætti með minnst 8 og mest 20 daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundartíma, fundarstað og dagskrá og geta þeirra mála sem ræða á og meginefni þeirra tillagna sem leggja á fyrir fundinn. Ef eigandi vill fá mál tekið fyrir og til atkvæðagreiðslu skal hann greina stjórninni skriflega frá því með
nægum fyrirvara svo unnt sé að geta þeirra í fundarboði. Búi félagsmaður ekki í húsinu verður hann að tilkynna húsfélaginu um heimilsfang sem senda skal fundarboð til óski hann eftir að fá það í hendur.
Almennir fundir
Til annarra almennra funda skal stjórnin boða tryggilega með minnst 4 og mest 20 daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina tíma og stað fundarins og þau mál sem verða tekin fyrir og meginefni tillagna. Búi félagsmaður ekki í húsinu verður hann að tilkynna húsfélaginu um heimilisfang sem senda skal fundarboð til óski hann eftir að fá það í hendur.
Fundarseta
Rétt til fundarsetu á húsfundum hafa aðeins félagsmenn, makar þeirra og sambýlisfólk. Þá má félagsmaður veita sérhverjum lögráða manni umboð til að mæta á fund og greiða atkvæði. Umboðsmaður þarf að leggja fram á fundinum skriflegt og dagsett umboð. Umboðið má hvenær sem er afturkalla. Þá getur fundurinn heimilað leigjendum í húsinu og öðrum sem geta átt hagsmuni að gæta að sitja fundi og hafa þar málfrelsi en hvorki tillögu- né atkvæðarétt. Þá er endurskoðanda húsfélagsins rétt að sækja fundi og taka til máls og gefa skýringar.
Fundargerð
Undir umsjá og á ábyrgð fundarstjóra skal rita í sérstaka fundargerðabók meginatriði allra mála sem tekin eru fyrir og allar ákvarðanir sem teknar eru og hvernig atkvæði hafa fallið ef því er að skipta. Í lok fundar skal fundargerðin lesin upp, hún leiðrétt og athugasemdir skráðar. Síðan á fundarstjóri og a.m.k. einn annar félagsmaður sem fundurinn hefur tilnefnt að undirrita fundargerðina. Fundargerðin er heimild um fundinn og sönnun þess sem þar fór fram. Fundargerðir eiga að vera aðgengilegar fyrir félagsmenn og eiga þeir rétt á að fá staðfest endurrit eða ljósrit þeirra.
Fundarstjórn
Húsfundi er stjórnað af formanni húsfélagsins. Ef hann er ekki viðstaddur velur fundurinn sjálfur fundarstjóra úr hópi félagsmanna.
Atkvæðisréttur
Atkvæðisréttur er í höndum félagsmanns. Maki eða sambúðaraðili getur farið með atkvæðisrétt fyrir félagsmann á fundi án sérstaks umboðs. Þegar sami maður á fleiri en einn eignarhluta í húsinu hefur hann atkvæðisrétt sérstaklega fyrir hvern eignarhluta.
Atkvæðagreiðslur, vægi og talning atkvæða
Um vægi atkvæða félagsmanna við ákvarðanir og vald og heimildir húsfélags og funda þess við ákvarðanatökur fer eftir ákvæðum 39.–42. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Í lögum nr. 26/1994 er ekki að finna ákvæði um fyrirkomulag atkvæðagreiðslu á húsfundum, gerð atkvæðaseðla eða framkvæmd talningar þeirra.