Eignarekstur tók þátt í könnun VR um Fyrirtæki ársins 2025. Það voru 700 fyrirtæki sem tóku þá, en af þeim voru 160 fyrirtæki í heildina sem voru valin í úrslit.
Heildareinkunn fyrirtækja er reiknuð út frá viðhorfi starfsfólks til ólíkra þátta starfsumhverfis. Spurt er um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju, og fleira (sjá nánar um aðferðafræði hér). Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu, enda ærin ástæða til að vekja athygli á frammistöðu þeirra.
Eignarekstur er í hópi 15 lítilla fyrirtækja (með starfsmenn undir 30) sem hlutu viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki 2025 í könnun VR um fyrirtæki ársins, en úrslitin voru kynnt í fjölmennri móttöku í Hörpu á fimmtudaginn síðastliðinn.
Alls fengu 45 fyrirtæki í þremur stærðarflokkum viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki 2025 og þar af fengu þrjú efstu fyrirtækin í hverjum stærðarflokki nafnbótina Fyrirtæki ársins 2025. Þá fékk eitt fyrirtæki í hverjum flokki nafnbótina Fjölskylduvænstu fyrirtækin 2025. Sömuleiðis var einu fyrirtæki í hverjum flokki veitt Fræðsluviðurkenning VR, sem byggir á viðhorfi starfsfólks til sí- og endurmenntunarmála innan fyrirtækisins og tækifæra til starfsþróunar.
Það var Ragnhildur Guðrún Pálsdóttir stofnandi og annar eigandi Eignareksturs , sem veitti viðurkenningunni viðtöku fyrir hönd Eignareksturs. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, afhentu viðurkenningarnar.
Það er ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu á 10 ára starfsári Eignareksturs. Efst í huga eigenda Eignareksturs er þakklæti til starfsfólksins fyrir jákvætt viðhorf til fyrirtækisins.
Nánari upplýsingarnar um könnunina og niðurstöður hennar er að finna hér.